Notalegt sumarhús í fallegu umhverfi við Bláskógabyggð.
Um er að ræða 37,3 fm sumarhús byggt árið 1965. Húsið er úr timbri, klætt að utan með standandi timburklæðningu og bárujárn á þaki. Húsið stendur á símastaurum. Byggt hefur verið við húsið en sá hluti er ekki inn í skráðri fermetratölu.
Eignin stendur á 5.000 fm vel gróinni lóð þar sem lítil á rennur meðfram landinu og skapar einstaklega fallegt og friðsælt andrúmsloft.
Skipulag hússins: Forstofa: Með furugólffjölum. Tvö svefnherbergi: Bæði með furugólffjölum. Eldhús: Hvít snyrtileg innrétting, kamína og furugólffjalir. Stofa: Björt og opin stofa með furugólffjölum og útgengi á verönd. Á veröndinni er nýr Soft Tub pottur. Baðherbergi: Innrétting með vask, salerni og sturtuklefa.
Staðsetning: Sumarhúsið er í einstaklega fallegu umhverfi þar sem náttúran leikur aðalhlutverkið. Örstutt er á Laugarvatn og stutt akstursfjarlægð er á helstu náttúruperlur á Gullna hringnum.